miðvikudagur, júní 29, 2005

Hún Berglind litla Rósa á afmæli í dag og því vil ég nota tækifærið til að segja:

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ!

mánudagur, júní 27, 2005

Hæ hæ öll og takk fyrir síðast!
Þetta var snilldardagur og alveg frábært kvöld. Hefði ekki getað verið skemmtilegra!

Úr einu í annað, ég fékk undarlega símhringingu áðan frá MasterCard þar sem ég var spurð hvort ég hefði nokkuð verið í útlöndum um síðustu helgi. Þá er sum sé búið að falsa kortið mitt og nota það í Bretlandi fyrir 100.000 kall! Kannski þið tékkið á færlsunum ykkar áður en þið borgið reikningana!

fimmtudagur, júní 23, 2005

Klukkan er 22:25 fimmtudagskvöldið 23. júní.
Nú eru eftir 36 miðar á Skóga.
Spurning um að tryggja sér síðustu miðana.

miðvikudagur, júní 22, 2005

Ég vil bara minna á útskriftarpartý okkar útskriftarnemanna á laugardagskvöldið. Teitið hefst klukkan níu heima hjá foreldrum Tótu, Arnarhrauni 38 í Hafnarfirði. Við höfum smá áhyggjur af því að ekki lesi allir bloggið svo endilega kommentið þegar þið eruð búin að lesa þetta svo við sjáum hverjir vita af þessu. Og svo bara að láta berast...!

Þetta verður stuð, stuð, stuð!!!

Hlökkum til að sjá ykkur,
Stuðlaug og Tótalí ;)

þriðjudagur, júní 21, 2005

Vantar ykkur vinnu???

Teiknistofan Óðinstorgi óskar eftir að ráða verk- eða tæknifræðimenntaðan einstakling í vinnu strax... við erum að tala um vinnu í sumar og eitthvað áfram (jafnvel framtíðarvinnu)! Ef ykkur sjálf eða einhvern sem þið þekkið vantar vinnu þá hafiði endilega samband við Teiknistofuna Óðinstorgi (s: 510-2200) og fáið að tala við Gústaf!! Skemmtileg vinna á góðum stað í bænum (101).

Kv. Malla
Í gær var ég með:

-133 fléttur í hárinu á mér

-185 gr af gervihári

...en ekki í dag - puhu!

mánudagur, júní 20, 2005

Við pæjurnar ætlum að bjóða í útskriftar-bekkjarpartí næstkomandi laugardag - þann 25.júní - heima hjá foreldrum Tótu á Arnarhraun 38 í Hafnarfirði. Mæting um níuleytið og megadjamm fram eftir öllu! Látiði þetta berast ef þið vitið um einhverja sem lesa bloggið ekki oft!

Skyldumæting.

Guðlaug og Tóta
Anything to declare? - Yeah don't go to Akureyri.

Ég fór frekar misheppnaða ferð til Akureyrar núna um helgina. Ástæðurnar eru þrjár:

1) Veðrið var ekki neitt til að hrópa húrra fyrir => The Tan-Plan fór út um þúfur.

2) Mér tókst að missa af síðasta og jafnframt áhugaverðasta skemmtiatriðinu í skipulagðri hátíðardagskrá á 17. júní sem var fjöldaslagsmál bæjarbúa.

3) Engu að síður tókst mér að láta lemja mig kvöldið eftir þannig að núna get ég ekki hlegið og ég hljóma eins og ég sé þroskaheftur ef ég reyni að segja orð sem eru með effi í.

Niðurstaða helgarinnar: Að fara til Akureyrar er léleg hugmynd!

fimmtudagur, júní 16, 2005

Gunni: ég fékk lánaða viftuna þína! Litlu munaði að ég yrði fyrir varanlegum heilaskemmdum vegna súrefnisleysis hér á Smyrilsveginum og ekki má ég nú við því! Þú veist bara af henni hjá mér ef þú þarft á henni að halda.

Annað: Sá Þorstein Þorsteinsson tilsýndar í gær - hefur einhver hugmynd um hvenær við eigum að skila Aswan-verkefninu?

miðvikudagur, júní 15, 2005

Myndir
hæ og takk fyrir síðast, ég er byrjuð að dúndra inn myndum, fyrstu 3 dagarnir komnir.. gengur hægt, er nebblega ekki með netið heima, en ég á góða að sem eiga góðar tölvur og góðar nettengingar ;) svo þetta ætti allt að fara að koma, anyways .. myndir myndir..
Bleeeeeeeesuð öll saman!
Nú styttist í fyrstu útileguhelgi ársins og ætla ekki örugglega sem flestir að fjölmenna á Skóga?
Djammið á Skógum síðasta sumar var algjör snilld og ég sárvorkenni þeim sem misstu af því. Þetta verður ekki síðra í ár ef marka má skógarsíðuna, www.skogar.tk
Það væri allavegna snilld ef sem flestir í bekknum og vinir þeirra myndu fjölmenna því það er alltaf skemmtilegast þar sem maður þekkir helling af fólki. Nú þegar hafa fullt af hetjum boðað komu sína t.d. Víkingur, Ringa, Kata, Ég, Dolli, Kenneth og svo 2. árs hetjur á borð við Helga Ba, Trausta, Bjarna, Ingunni, Heiðrúnu og Betu Becks svo e-ir séu nefndir.

Allavegna hvet alla til að mæta og þótt þið séuð ekki alveg 100% þá er samt fínt að skrá sig fyrir miða (ekki bindandi!!). Miðana þarf ekki að borga fyrr en í vikunni fyrir þannig að ekkert stress í þeim efnum.

þriðjudagur, júní 14, 2005

Er farin að hlaða inn myndum á síðuna mína. Er komin með fyrstu sex dagana - þvílíkt magn! Kíkið á:

Svo vil ég óska Soffíu - og Katrínu - til hamingju með afmælið!!!

mánudagur, júní 13, 2005

jæja ég ætla að vona að liðið sé að skríða aftur saman eftir allt ruglið. Ég hef aðeins litið á vídeóspólurnar og tel þetta ágætis hráefni í fyrirmyndarvídeó, ef e-r laumar á samskonar vídeóklippum og begga er með á sinni síðu, þá má sá hinn sami gefa sig fram.

sunnudagur, júní 12, 2005

Heyr heyr Unnur!

...en á einhver betri mynd af Tuma!?!

föstudagur, júní 10, 2005

VELKOMIN HEIM!!!
Þið getið ekki trúað því hvað ég saknaði ykkar mikið. Nú er bara að halda partý sem fyrst svo ég geti séð í smettin á ykkur ;)

sunnudagur, maí 15, 2005

Á einhver hakkísakk bolta? Endilega kippa honum með þá, við verðum að hafa eitthvað að gera á flugvöllunum þegar við þurfum að vera að bíða eftir flugum (ekki moskító samt).

fimmtudagur, maí 12, 2005

Vesturnílarveiran (e. West Nile Virus) telst til sama hóps veira og þær sem valda beinbrunasótt og gulusótt. Um er að ræða RNA-veirur sem berast á milli hýsla með skordýrum. Vesturnílarveiran greindist fyrst árið 1937 í Úganda og er í dag nokkuð algeng í mönnum, fuglum og öðrum hryggdýrum í Afríku, Vestur-Asíu og í Miðausturlöndum. Hún er einnig þekkt í suðurhluta Evrópu.

Vesturnílarveiran berst í fólk ef það er bitið af sýktum moskítóflugum (aðallega af tegundinni Culex pipiens). Moskítóflugurnar sýkjast þegar þær sjúga blóð úr sýktum fuglum. Margar fuglategundir hafa greinst sem millihýslar fyrir veiruna en í New York er talið að gráspör (e. house sparrow), algengur spörfugl í görðum borgarbúa, sé helsti millihýsillinn. Veirunni fjölgar í þessum fuglum í um fimm daga eða lengur þannig að ef þeir eru bitnir af moskítóflugum á þeim tíma sýkjast þær. Ef sýktar flugur bíta síðan og sjúga blóð úr fólki eða dýrum sprautast veiran í blóðrás fórnarlambsins. Meðgöngutími sjúkdóms, það er sá tími líður frá því að maður fær veiruna í sig þar til sjúkdómseinkenni koma fram, eru 2-17 dagar.




Um 80% þeirra sem smitast af vesturnílarveirunni fá engin einkenni sýkingar. Langflestir þeirra sem veikjast fá svokallaða vesturnílarhitasótt. Einkenni hennar eru hiti, höfuðverkur, slen, beinverkir og í sumum tilfellum húðútbrot á búknum ásamt bólgnum eitlum. Hitasóttin getur varað allt frá fáeinum dögum til nokkurra vikna.

Áætlað er að einn af hverjum 150 einstaklingum sem smitast (eða innan við 1%) fái vesturnílarveiki sem er mun skæðari en hitasóttin. Einkenni vesturnílarveiki koma fram á taugakerfinu sem heilabólga, heilahimnubólga eða mænuveiki. Þessu fylgja höfuðverkur, stífur háls, ógleði og uppköst, hár hiti og lömun.

Rétt er að geta þess að vesturnílarhitasótt þróast ekki yfir í skæðu veikina heldur veikjast einstaklingar annað hvort af hitasóttinni eða skæðara afbrigðinu, vesturnílarveikinni.



Fólk á öllum aldri getur orðið alvarlega veikt af vesturnílarveirunni. Einstaklingar sem komnir eru yfir fimmtugt og í sumum tilfellum einstaklingar með ónæmisbælingu (til dæmis þeir sem hafa farið í líffæraígræðslu) eru þó í mestri hættu á að veikjast alvarlega af völdum vesturnílarveirunnar.

Eins og áður sagði er það aðeins lítill hluti smitaðra sem fær einhver einkenni. Ekki er þó hægt að vita fyrirfram hvort viðkomandi er í þeim hópi eða ekki. Fái sýktur einstaklingur einkenni vara þau oftast í nokkra daga, þótt í sumum tilfellum, jafnvel hjá hraustu fólki, geti þau varað í nokkrar vikur. Einkenni skæðrar sýkingar geta varað í nokkrar vikur og áhrif á taugakerfið geta verið varanleg.

Líkt og með aðrar veirusýkingar er lítið hægt að gera við smiti af vesturnílarveirunni annað en að bíða eftir að ónæmiskerfið vinni bug á sýkingunni. Að sjálfsögðu má lina ýmis einkenni, eins og höfuðverk og beinverki, með verkjalyfjum en engin lyf eru til sem lækna sjúkdóminn sjálfan.

Besta vörnin gegn sýkingunni er að gera ráðstafanir til að draga úr hættu á moskítóflugubiti. Gæta þess að vera ekki úti með bera útlimi, nota flugnafæluefni, hafa flugnanet í gluggum og þurrka upp vatn þar sem moskítóflugur tímgast.

Ekki er vitað til þess að vesturnílarveiran hafi borist til Íslands.

Ekki enn... fyrr en verkfræðicoolistar í HI lögðu land undir fót og Afríka varð fyrir valinu ;).

miðvikudagur, maí 11, 2005

Jói litli er sá klárasti í bekknum, og er alltaf fyrstur að klára prófin og spurningarblöðin. Svo að hann hafi nú eitthvað að gera, eftir að hann var fyrstur búinn að svara spurningarblaði kennarans, ákvað kennarinn að spyrja hann aukaspurningar.
"Jói minn, þú ert nú svo klár, að ég ætla að spyrja þig einnar aukaspurninar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir?"
"Enginn", svarar Jói.
"Hvað meinar þú... enginn?", spyr kennslukonan?
"Já, einn drepst, dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu" segir Jói

Kennslukonan kinkar kolli og segir "svarið átti nú að vera 4, en mér líkar hvernig þú hugsar" Örstuttu seinna réttir Jói litli upp hendi.
"Já Jói"
"Má ég spyrja þig einnar spurningar?"
"Endilega" segir kennslukonan.
"Ókei, 3 konur standa við ísbíl, og allar eru búnar að kaupa sér ís, ein af þeim sleikir ísinn, ein af þeim bítur í ísinn og ein af þeim sýgur ísinn. Hver þeirra er gift?"
Spyr Jói, Kennslukonan roðnar og segir,
"Eee....ég veit ekki alveg, ætli það sé ekki sú sem sýgur ísinn?....eða eitthvað"
"Neeiiii" segir Jói litli, "það er sú sem er með giftingarhringinn, en mér líkar hvernig þú hugsar"

þriðjudagur, maí 10, 2005

Ég hef öruggar heimildir fyrir því að skipstjórinn á Nile Ritz hafi sex putta á vinstri hendi. Hann hefur ábyggilega verið gerður að skipstjóra af því hann kunni að telja upp í ellefu.

sunnudagur, maí 08, 2005

Vildi bara deila þessu með ykkur. Þetta er að eyðileggja próflesturinn fyrir mér. Frænka mín leysti þetta á 7 mínútum, en ég sat í svona 45 mín. í gær og reyndi án árangurs. Kannski var það lengur, ég ætlaði að taka tímann en var búinn að gleyma því hvað klukkan var þegar ég byrjaði þegar ég gafst upp!