mánudagur, maí 31, 2004

ussss! það rýkur úr manni, þvílík læti, eyrun lafa bara niðri eins og á labradorhundi, kornið tók svakalega á því í höllinni, þeir byltu henni næstu því,eins og röggi lína myndi segja "höll bylt".mar tók stúkuna á þetta eins og um alla helgina,en eg hef ekki svitnað eins mikið sitjandi nema kannski fyrir utan þegar mar var í hinu fræga viðbjóðslega samræmaprófi í stærðfræði e-n tímann á síðustu öld, mar var eins og matarolía þarna í sætinu! en á tónleikunum bar mest á liði úr vélinni þ.e.a.s. í verkfr., hvar var byggingin spyr eg ? var kannski fm 95.7 með e-ð kynningarkvöld á bláum strípum og eilífðar brúnkukremi ?
Já komiði sæl og blessuð á þessum dásamlega mánudegi, eru ekki allir í stuði fyrir afar auðvelda textakeppni???? jú svei mjer þá!!!

I wrote this song two hours before we met
I didn't know your name or what you looked like yet
Jæja, þá er fyrstu helgardvölinni í vinnunni lokið. Er að vinna í Reykjadal sem eru sumarbúðir fyrir fatlaða svo að ég er bara búin að vera í sundi og útileikjum alla helgina - komin með nokkrar freknur í viðbót! Var alveg búin að gleyma hvað í grænni lautu og bb-bensín er skemmtilegt.

laugardagur, maí 29, 2004

Ég vil minna fólk á að spara ekki broskallana. Þeir ljetta lundina og gæða tilveruna áður óþekktri gleði.

fimmtudagur, maí 27, 2004

Hæ þið góða fólk..

er eikver möguleiki að það sé pláss fyrir eina litla kisu hjá ykkur í sumar? ..ég mun kaupa allann mat og soleis..hana vantar bara stað til að vera...rosa góð og kelin...pabbi er nebbla með svo rosalegt ofnæmi...plís eikver..annars þarf ég að lóga henni...
eg beið eftir að þakboginn á Kaplakrikanum spenntist af áðan þegar Pixies blöstuðu græjurnar,engin smá keyrsla, þvílíkur stemmari,en eg sá ekki mörg verkfræðileg andlit,eg sem hélt að þið væruð svo miklir rokkarar!

þriðjudagur, maí 25, 2004

Vá ég vissi ekki að manni myndi leiðast svona loksins þegar skólinn er búinn og maður þarf ekki að læra á kvöldin...

..nennir eikver að koma að leika?
Jaeja krakkalakkarnir minir!
Eg er hvorki meira ne minna i Bangkok thessa stundina! Ferdin er buin ad vera alveg geggjud. Vid vorum i viku i Kuala Lumpur og erum buin ad vera her i 3 daga. Hitinn er natturulega obaerilegur eda ca. 40 gradur. Bangkok er ekki lik neinum stad sem vid hofum komid a adur. Innan um storar glerbyggingar eru barujarnshreysi og folk byr meira ad segja undir hradbrautunum!!! Eg er buin ad profa fullt af framandi mat og passa mig vitaskuld a ollum kjuklingum og svoleidis. Svo inn a milli tharf madur ad taka vel til matar sins og tha er farid a MacDonalds eda Pizza Hut. Naesta sunnudag holdum vid svo til eyjarinnar Phuket sem tilheyrir Tailandi. Thad a vist ad vera algjor draumastadur. Og by the way: Vid erum bara buin ad vera a 5 stjornu hotelum!!! Vid lifum eins og kongar og drottningar :)
Eg hlakka ofsalega til ad sja ykkur oll og goda skemmtun a Islandi!!! Kvedja,

mánudagur, maí 24, 2004

Ég get ekki neitað því að í kuldanum og rigningunni á föstudaginn var ég frekar bitur út í þá sem eru með innivinnu í sumar. Og svona í tilefni dagsins langaði mig bara að láta ykkur (sérstaklega þá sem vinna inni) vita að ég náði mér í minn fyrsta sólbruna á árinu 2004 í dag.
Og meðan ég man… eru ekki allir komnir í fílinginn fyrir miðvikudaginn?
Ég vil bara óska sjálfri mér til hamingju með að hafa fengið heila 5 í eðlisfræðiprófinu!!! ..kver segir svo að ekki sé hægt að læra heila önn á 5 dögum..hmmmmmm
...tek við hamingjuóskum og skeytum í kvöld frá átta og uppúr.. :)
Jæja ruglarar ég fór í þessa líka skemmtilegu óvissuferð í gær! Eins og venjulega þá entist ég von úr viti og skemmti mér konunglega við það að hoppa niður af bryggjunni á stokkseyri og fleira heimskulegt sem á alls ekki að gera dagsdaglega hvað þá þegar maður hefur fengið sér "aðeins" að drekka. Hvað um þá þá óska ég hér með eftir samúð þar sem ég var ekki fyrr komin heim en ég átti að mæta í vinnuna þannig að það stefnir allt í frekar þunnan dag hjá mér....
Þeir eru ekki margir sem eru komnir með hvítan hjálm og Nissan Patrol 23 ára...

sunnudagur, maí 23, 2004

Skriðþungi dauðans eða ekki í jafnvægi!
þunn.is

laugardagur, maí 22, 2004

Einhverntíman í vetur þá leiddist mjer óvenju mikið og þá fór ég að fikta í diktófóni nokkrum sem eg keypti eitt sinn fyrir pela af gini.

Diktófónar þessir eru með tveim hröðum, og taki maður upp á hægari hraðanum, en spili á þeim hraðari kemur þessi líka skemmtilega helíumrödd.

Hjer er hluti af afrakstrinum, Geðsjúki trúbadorinn að spila Ragnheiði Biskupsdóttur eftir Megas.
Komiði sæl, í þessari færslu verða engin bil á milli orða og engin greinarmerki, góða skemmtun.
ÞaðeralkunnaaðéghafimikiðyndiaflífsháskaoggóðumgustiþvívilégkomaáframfærisjerstökuþakklætitilallraþeirraökumannasemókuReykjanesbrautinaígæroghægðuhvorkiásjernjevjekufrágaurnumíkuldagallanum,meðbakpokannogskringilegustönginasemhannvirtistvandasigmikiðviðaðstaðsetjaþaðvarreyndareinnbíllsemókhægtenhonumstýrðigamallkallmeðhatterhannbrunaðiframhjáásínumþrjátíukílómetrahraðaáklukkustundheyrðiegaðhannöskraðihelvítisveggjakrotararútumglugganenþávaregaðspreyjafyrirmiðlínunumsvonaernúlífiðspennandihjámjer

Takk fyrir.

föstudagur, maí 21, 2004

jæja..nú er næstum liðin vika frá því við lukum prófum...kvernin væri að halda uppá einnar viku prófammæli á morgun??!!!! hmmmmm ;) ...rétt upp hönd sem eru til í það..víííí
Jæja börnin góð! Nú er ég loksins búin að finna passwordið mitt aftur og get því byrjað að böggar ykkur alveg nonstopp!
Og lýsa yfir ánægju minni með hveragerði! Þessa stundina er ég eimmitt að útbúa götukort af þeim ágæta bæ, og hef komist að ýmsu sem ég er nokkuð viss um að þið vissuð ekki um hveró! Nóg um það....
Er ekki í vafa um það að ég hef lent á einhverjum heppilegasta vinnustað sem um getur! Fyrsti starfsmannafundurinn minn var í fyrradag og það er nú þegar búið að skipuleggja einhver 4 djömm sí svona! Byrjar amk vel :)

fimmtudagur, maí 20, 2004

Ég hef haft það orð á mér að vera lengi að öllu… það er reyndar ekki alveg rétt því að það er einn hlutur sem ég er fljótur að og það er að lenda á eftir áætlun. Ég hef alltaf verið snöggur að því.
Ég skila flestum verkefnum degi of seint en ég held að ég hafi aldrei skilað neinu eins seint og þessu, but here it comes, hérna er mín tilnefning í tvífarasamkeppninni (reyndar er þetta eina tilnefningin að þríförum en hvað um það) og ég segi nú bara Gummi Gallager my ass!!!
Ótrúlega skemmtilegur póstur frá mér að vanda. Mig vantar mikið að komast yfir Autocad. Er ekki e-r snillingur sem á þetta á disk sem ég gæti fengið að skrifa?
Hérna eru nokkrar fyndnar og „fyndnar“ myndir sem hægt er að brosa að, ég sé að það þarf að skoða hverja mynd gaumgæfilega áður en henni er smellt á netið, því maður veit aldrei hvað getur leynst í bakgrunninum :)

miðvikudagur, maí 19, 2004

Jæja, nú er sko vika letinnar tekin við! Maður bara sefur til hádegis og lufsast síðan það sem eftir er af deginum. Svo verður maður náttúrlega að vinna upp allt sjónvarpstapið s.l. vikur. Það eru nefnilega ekki allir sem tóku sér pásu á bókhlöðunni til að fylgjast með Leiðarljósi!
Best að njóta þess meðan það varir. Það ætti nú ekki að vera erfitt þegar Pride and Prejudice er innan seilingar, með Colin Firth í fararbroddi!

þriðjudagur, maí 18, 2004


Í dag varð uppi fótur og fit á Hafnarfjarðarhöfn þegar hjólagrafa ók á fullu gassi niður sjósetningarramp og virtist stefna út í sjó.

Grafan snarhemlaði hinsvegar á síðustu stundu, dýfði skóflunni ofan í sjóinn, hristi hana örlítið og skilaði vatninu gráu ofan í aftur. Snjerist grafan síðan á undirvagninum og hvarf jafn fljótt og hana hafði borið að.

Þið hefður átt að sjá gömlu kallana, ég hef ábyggilega stytt líf hvers þeirra um svona... þrjá mánuði...

mánudagur, maí 17, 2004

Kjartan G. Magnússon!! Þú ert YNDISLEGUR maður og hér með titlaður uppáhaldskennarinn minn í öllum heiminum!!

kær kveðja,
Berglind stærðfræðisnillingur sem ætlar ALDREI að læra fourierummyndanir!!
Usss, Vatnafræðin bara komin... 15% fall er nú meira en ég átti von á. Lítur út fyrir að Sigginn ætli ekki að taka neitt af þessu á sig. A.m.k. hef ég verið með lélega einkunn fyrir verkefnið ef hann skalaði þetta eitthvað upp.

sunnudagur, maí 16, 2004

.....
Hæ :) mínar myndir eru hérna
Myndirnar af próflokadjamminu eru komnar á netið!!

Þær eru hjer
það er alltaf gaman af góðum prumpubröndurum og þessi hérna er sko engin undantekning!
Jæja krakkar til hamingju með próflokin. Hérna er ein sem eykur verulega á hausverkinn. Sjöunda bjallan!

Ein aðalkarlpersónan í kvikmyndinni Trainspotting heldur mikið upp á James Bond leikarann og landa sinn Sean Connery og talar oft um hann í myndinni. Í lokalagi myndarinnar, sem sungið er af Damon Albarn koma svo fyrir titlar allra Bond myndanna sem Connery lék í.
Spurt er: Hvað heitir Connery aðdáandinn úr Trainspotting og hver er síðasti Bondmyndartitillinn sem kemur fyrir í laginu (sem er jafnframt síðasta Bondmyndin sem Connery lék í) með Damon Albarn?

Tikk takk tikk takk tikk takk....

laugardagur, maí 15, 2004

Gunni Gunn, frískur og fjörugur.

Elsku litlu krúttilegu bekkjarfélagar!
Þá er komið að síðasta prófinu okkar í bili og stressið farið að segja all hressilega til sín. Þess má geta að ég var svo stressuð í gær að ég fékk gubbupest! Vona innilega að enginn hafi verið í sömu sporum og ég. En ég mun því miður ekki heiðra ykkur með nærveru minni í kvöld þar sem ég held til fjarlægari landa í fyrramálið. Og því segi ég bara: Takk fyrir veturinn og góða skemmtun í kvöld :) Þið verðið að taka vel á því og standa undir væntingum um mikið stuð með Hemma Gunn!
Gleðilegt sumar öll sömul!
Oks... það eru bara fjórir og hálfur tími þangað til við göngum út úr stofunni og jaba daba... við erum búin með vorönn Háskóla Íslands veturinnn 2004... jaba daba.

Og þar sem ég er svo upptekin af rennsli timans þessa dagna, þá finnst mér ótrúlega sniðugt að einhver kemur til með að lesa þetta þegar við erum búin, tjillar, sest við tölvuna og sér þá þetta, og finnst þetta nú lítið mál... að vera búinn. Puff...

En það er samt eitt helvítis próf eftir þessa stundina og ég þori ekki einu sinni að hrista hausinn eða beygja mig niður, ég er svo hrædd um að sýndarvinnusetningin eða RR-aðferðin detti út úr hausnum á mér. Það stendur frekar tæpt! Ég ætla sko að halda henni nauðugri þarna inni og drekkja henni svo í kvöld, that will give me alot of satisfaction!!! Múehehheheheheheh... Special for you my friend, only for you my friend...you boring bitch!

föstudagur, maí 14, 2004

nei, nú er mér allri lokið!!! hvernig er það mögulegt að fá dejá vu við að lesa aflfræðibókina???? ..þetta ætti að útiloka margar kenningarnar..
ég hef átt það til í gengum tíðina að rugga mér á stólum og stundum hefur það endað sem rassskell með hröðunina 9.82 m/s2,sem betur fer hefur mér ekki tekist að leika þennan leik eftir í tímum, en þessi pjakkur hérna slær allavega mig og held ég alla, út í stólaíþróttum!
Guð hvað ég vorkenni sjálfri mér! Sit uppi á hlöðu, með þeim örfáum hræðum sem eru ekki búin með prófin, og reyni að troða þessari bölvuðu aflfræði inn í hausinn á mér. Hverjum er ekki sama þó að stífnifylki séu samhverf! Er hrædd um að það sé ansi stutt í gubbupestina hjá mér.
Hey... þið þarna álfar sem hafið verið að monta ykkur af því að vera búin í prófum... Þið eigið náttúrulega að stjana við okkur sem erum að klára og erum enn föst í hringiðu geðveikinnar. Þess vegna eigið þið að sjá sóma ykkar í því að redda matarveislu fyrir okkur hin sem og óvæntar uppákomur og skemmtiatriði. Við verðum öll náttúrulega frekar fúl og grömpí eftir svefnleysi og andlega-sálar-kreppu... eða ekki.... Það verða allir í brjáluðu stuði og þá er væntanlega nægur matur, veigar og skemmtiatriði vel þegin. Þið gætuð aukið vinsældir ykkar verulega ;)
Hey, var að spá, þið ykkar sem mættuð nú duglega í síðustu tímana. Var hann eitthvað búinn að fara eitthvað sérstaklega í síðasta verkefnið? Eigum við að eiga einhverjar glósur um þetta, eða úr 9.8, 9.9 og 9.10?

Er enginn að fylgjast með danska konungsbrúðkaupinu? Danir hreinlega hljóta að ganga eld og brennistein fyrir þetta konungsveldi sitt. En þetta er samt geggjað flott! Vona að hann spyrji út í þetta á prófinu! En merkilegt nokk þá sá ég Möggu ekkert kveikja sér í rettu, held að hún hafi samt verið með nikotín-tyggjó.
Jæja þá er komið að sextu bjölluspurningu:

Hvaða plata með hvaða hljómsveit hefst á þessum orðum?

“So I've decided to take my work back under ground, to stop it falling into the wrong hands”

Þess má geta að þessi setning er upphaflega úr hryllingsmyndinni The Lawnmower Man (sem hefur vafalaust verið þýtt sem Sláttumaðurinn á sínum tíma).
Tikk takk tikk takk tikk takk tikk takk....
Slef’í gegn

Ef ég ætti óskastein
yrði óskin aðeins ein
ég er alltaf að reikna
og gröf upp ég teikna
vigrar og framandi föll

Slef´í gegn, slef’í gegn
þú veist ég þrái að slef’í gegn
Af einhverjum völdum
hefir það reynst mjer um megn

Ég gæti glósað, skrudduna
á gula miða, í budduna
og miðinn er málið
þar er svarið við k-lið
sínus af þeta plús pí

Slef´í gegn, slef’í gegn
þú veist ég þrái að slef’í gegn
Af einhverjum völdum
hefir það reynst mjer um megn

Ég myndi gera næstum því
hvað sem er fyrir fimmuna
nema kanski ...
kyssa kennarann

Ó Ó, allt annað fyrir það
ég tegra arctangens afturábak
af opnu mengi fyrir fimmuna

Slef´í gegn, slef’í gegn
þú veist ég þrái að slef’í gegn
Af einhverjum völdum
hefir það reynst mjer um megn

fimmtudagur, maí 13, 2004

Ég er bara farinn að fíla mig eins og Jeff í Survivor, því þið hélduð kannski að þessi leikur gæti ekki orðið meira spennandi en þá kem ég með þetta óvænta útspil…
Fimmta bjölluspurningin!!!
Hver mælti:
“You owe me a cat.”
(eftirnafn er nóg) og hvað hét umræddur köttur að hans sögn.
Athugið að ekki er nóg að svara bara öðrum liðnum!
Tikk takk tikk takk tikk takk....

Bara smá minnisvarði um það hvað ég hef lítið að gera um þessar mundir...
Sendi Gísla póst áðan þar sem hann sagði að hvorki jöfnur né myndir yrðu gefnar á prófinu, þ.e. þessar óendanlegu jöfnur þurfum við einfaldlega að kunna. Það er hins vegar bara gaman að teikna myndir eins og allir vita. Væri allt í lagi ef Q4 einingin kæmi á prófinu.
Þá eru prófin búin...

þá syngur maður þetta hjer...
Þá eru prófin búin...

þá syngur maður þetta hjer...
Þá eru prófin búin...

þá syngur maður þetta hjer...
Þá eru prófin búin...

þá syngur maður þetta hjer...
Þá eru prófin búin...

þá syngur maður þetta hjer...
Þá eru prófin búin...

þá syngur maður þetta hjer...
Helv... tölvan mín er hrunin... Held að það sé vírus, enn einn viðurstyggilegi vírusinn sem eitthvað krakkaógeð kom af stað til að ráðast á mannskrattann B.G. sem ég er svo sem alls ekki minn maður en ég neyðist til þess að vera eins og hinir og týna upp brauðmolana sem hann fleygir til okkar ofan úr hásæti sínu.

Ég legg til uppreisn! Fyrir þá sem vilja taka þátt lesið áfram, fyrir þá sem vilja halda áfram að vera þrælar microsoft og fljóta með í hringiðu peningaplokks og pretta skrollið niður og lesið eitthvað annað sem höfðar til ykkar lítil máttugrar sálar.

Þeir sem vilja ná sér í Linux, t.d. Red Hat geta farið hingað. Nýjasta útgáfan af Red Hat er Linux Red Hat 9. Fyrir þá sem vilja lesa sér meira til um þetta geta farið hingað Það virðist vera mest af upplýsingum um Red Hat, en það eru til fullt af öðrum eins og Suse og Mandrake fl.

Fyrir þá sem ekki hafa ótakmarkaðan download kvóta, þá er ég búin að ná í flest þetta og þið getið koperað þetta (þrír diskar um 400-600 MB hver). Sjálf kann ég ekkert á þetta og hef ekki hugmynd um hvernig þetta virkar yfir höfuð en er að fara að kynna mér þetta í mjög svo náinni framtíð. Helst núna ef ég væri ekki að fara í reiknilega aflfræði. Ef einhver dulbúinn Linux séni er í bekknum, þá er hann beðinn um að gefa sig fram.

Fyrir þau ykkar sem langar að eyða sumrinu í að læra að tekka geta farið hingað. Þarna er MiKTeX fyrir windows, og fyrir Unix og Macintosh.

En annars hefði ég viljað fá námskeið eins og þeir hafa víst haldið fyrir raungreinadeildirnar þar sem Linux er kynnt eitthvað. Þetta var eitthvað kvöldnámskeið sem var haldið nokkur kvöld, en ég hef ekki séð þetta frá því að ég byrjaði.

En annars lifið heil!
Jæja...
en þetta hjer:

I was Stone and he was Wax
So he could scream and still relax, unbelievable
And we frightened the small children away

Sá sem getur þetta án þess að fara á google, fær prik.
Doctor Evil hérna með fjórðu bjölluna í leiknum Gettu bekkur.

Þessi texti er úr lagi:

The sea is my best friend
we’re always crying
when crawling in the sand
tired of breathing

hvaða hljómsveit gerði þetta lag og hvað heitir lagið?
Tikk takk tikk takk tikk takk...

miðvikudagur, maí 12, 2004

Ég vildi bara minna ykkur á, krakkarnir mínir, að hugsa vel um húðina og bera á hana bæði nætur og dagkrem svo þið verðið ekki krumpuð og ógeðsleg.

Ég hef reyndar aðeins verið að þefa í kringum stelpurnar í vetur, og flestar virðast nú nota krem af einhverju tagi. Mjer fannst nú reyndar ódýr lyktin af þeim flestum. Það borgar sig að kaupa gott krem.

Hann Gunnar Arnar ilmar alltaf af nýjasta kreminu frá Katrin Herzog og mjer finnst að þið ættuð að taka hann ykkur til fyrirmyndar, svo er hann líka búinn í prófum eins og hann er svo duglegur að segja frá.

Maski öðru hverju setur svo punktinn yfir i-ið, það er líka gaman, að vera grænn í framan.

Fiskbúð Hafliða var að auglýsa glænýja línuýsu í dag, hvar fær Hafliði eiginlega allan þennan fisk?
djös snilld! aaaaaahhh koma sér vel fyrir já svona, akkurat svona, og tærnar uppí loft, vildi bara deila því með ykkur, var nefnilega að klára í dag! :)
Doktor Felix Bergmann mættur hérna aftur með 3. bjölluspurninguna:
Gamanþættirnir Suddenly Susan voru á dagskrá Ríkissjónvarpsins fyrir nokkrum árum. Margir skemmtilegir karakterar komu þar fyrir, t.d. Todd Stites, Luis (ljósmyndarinn frá Kúbu), Maddy Piper, Vicky Groner og maðurinn hennar Ben.
Nú er spurt: Hvaða leikkona lék Susan Keane í þáttunum og hvað hét yfirmaður hennar í þáttunum (ritstjóri tímaritsins sem hún vann hjá) sem leikinn var af Judd Nelson? (fornafnið dugar)
Tikk takk tikk takk tikk takk tikk takk

Þessi er strembin svo ekki hika við að fara á google Andrés ;)

Þess má geta að framleiðslu þáttanna var hætt þegar leikarinn sem lék Todd framdi sjálfsmorð.
Við lifum aðeins einu sinni
á þessum stað í þessu skinni
og því er um að ger'að nýta
hvert tækifæri sem best

Það þytur í lofti og þróttur í mér
í þankanum strauma ég finn
Mér segir sá hugur að allt gangi upp
og þetta sé dagurinn minn

Með viljann að vopni og vonir sem drífa mig áfram
ég lagð'upp með lítið
en ég lofaði sjálfum mér því
að klára það verk sem hafið er
og njóta þess alveg að lifa nú og hér

Það eiga allir sína drauma
í flestum hugarfylgsnum krauma
þá sem þurf'að finna farveg
og verða fljót fyrir rest

við lifum aðeins einu sinni...

múhahhahhahhaa.... nú verð ég ekki ein sönglandi í prófinu ;)
Ef að einhver er með það á hreinu hvernig v er reiknað í skekkjureikningum fyrir hallamælingar og af hverju það er alltaf pósitíft, þá má sá hinn sami endilega segja mér frá því. Þess ber þó að geta að engin stig eru gefin fyrir rétt svar við þessari spurningu ;)

þriðjudagur, maí 11, 2004



Doktor Gunni Bergmann Eiðsson mættur hérna aftur með bjölluspurningu númer tvö:
Fyrir hvað er Bandaríkjamaðurinn Frankie Muniz þekktur?
Tikk takk tikk takk tikk takk....
Jæja, krakkar mínir!
Haldiði ekki bara að Kjartan sé búinn að skila inn einkunnum í stfgr.IVB. Þá er það bara að bíða með öndina í hálsinum eftir SMS-i. Úff! Ég fæ hroll...
Kíkiði á fjórða neðsta punkt á annari blaðsíðu í glærukafla 2 frá Kolbeini.. einkar áhugaverður.. sannleiksgildi núll?

mánudagur, maí 10, 2004

eiga einhverjir fleiri í erfiðleikum með að opna luk glærurnar? ég sé alla skammtana en ekkert opnast.. það væri ágætt að geta farið að renna yfir þetta svona hvað úr hverju ef einhver hefur lausn..
Klukkan er 13:20, Andrés Heimir Árnason grípur pennaveskið sitt og heldur til bardaga.
Verið velkomin í spurningaleikinn Gettu Bekkur! Dómari og spurningahöfundur er Halim Al og sjálfur heiti ég ekki Logi Bergmann Eiðsson en við treystum því að Steina Vala sjái um að telja stigin.
Spurning dagsins er bjölluspurning, ég vil minna þátttakendur á að aðeins er einn svarréttur á mann við hverja spurningu.
Við skulum sjá mynd.
Árið 1990 var þessi maður á hápunkti ferilsins og gaf þá út plötuna To The Extreme sem innihélt m.a. lagið Ice Ice Baby. Aðrar plötur sem hann hefur gefið út eru til dæmis Hot Sex (2003) og Hard To Swallow (1998).
Hvað heitir kappinn?
Tikk takk tikk takk tikk takk tikk takk….
Ef það myndi nú spyrjast út hvað gerist á bókasafninu í VR eftir miðnætti....

ÖSSSS!!!!!

sunnudagur, maí 09, 2004

hérna .. Víkingur, ég er í smá vandræðum með luk .. hvað er aftur SQL ? verður það til prófs??
Þetta var nú ekki gott múf hjá þér Steina. Nú hljómar bara "I wish I were an angel..." í hausnum á mér! Verð nú að játa að það er aðeins skárra en lagið sem ég var með á heilanum í greiningu fjögur prófinu en þá sat lillimann klifurmús sem fastast í heilabúinu. Á það nefnilega til að fá eitthvað leiðindalag á heilann þegar mér leiðist og það átti sko við í þessu prófi. Svo þegar ég reyndi að hugsa um eitthvað annað lag kom bara "dvel ég í draumahöll" upp í kollinn sem var nú ekki miklu skárra. Hvað ætli ég fari nú syngja í LUK prófinu!?! Það gæti kannski einhver komið með hugmynd að lagi fyrir mig!
Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að það er algerlega ómögulegt að hafa áhuga á landfræðilegum upplýsingakerfum. Þau hafa nákvæmlega ekkert skemmtilegt upp á að bjóða. Eitt er þó alveg ljóst og það er að ég verð að eignast svona bleika skyrtu eins og maðurinn framan á LUK bókinni er í ;)

laugardagur, maí 08, 2004

Vildi bara segja ykkur að Tóta sendi Gísla meil áðan og spurði hvort við mættum ekki sleppa verkefnum 12 og 13, eins og Ragnar Sigbjörns sagði, og það stendur!
Heyrðu, ég skal virkilega leyfa ykkur að heyra alvöru hræðilega tónlist... frumraun mín í fiðluspili. Það gerist ekki verra en þetta, enda byrja stífar æfingar um leið og prófatörn líkur. En bara ykkur að segja þá er þetta fyrsta og eina helvítis lagið sem ég hef spilað á þessa fiðlu, sem ég eignaðist fyrir stuttu og það stendur til að bæta úr þessu.
Jæja Katrín tékkaðu þá á þessu, það ætti að vera nóg af trommum og geðveiki í því fyrir þig ;)
Aleinn og yfirgefinn-Hemmabomban hin nýja
Heiðurspiltar og lukkulegar stúlkur athugið, hjer fáiði nýtizku dansilag, sem að sjarmörinn og góðtemplarinn Hermann Gunnarson syngur af snilld alkunnri. Hermann Gunnarson þessi hefir nú þegar getið sjer gott orð fyrir líflega sjónvarpsþætti sína, þar sem hann þykir bæði kerskinn og hress. Lag þetta mun eigi slá á hróður kappans, nema síður sje, og veita yl á ölvuðum stundum.

Þetta lag mun dreifa álaginu, svo eg bregði fyrir mig verkfræðimáli, af hinum víðfræga polka "einum dansi við mig"

Lag þetta fáiði hjer.


Sýniði þolinmæði, keyrslan hefst ekki fyrr en á fimmtugustu sekúndu, en eftir það getur yður þótt erfitt að sitja kyrr.Lagið þykir hressandi og Hemma tekst, sem svo oft áður, að láta textann eiga erindi til oss allra.

Eins mælumst vjer til þess að þjer varðveitið Morgunblaðið frá því í gær eins og sjáaldur augna yðar, geymið það í læstu skríni og dragið einungis fram á hátíðlegum tilefnum.

Slútt með sjerdeilis virðingu
drasl,þ.e.a.s. ég er drasl reynum aftur, það
Ok,þetta fæ eg bara ekki skilið, sama úr hve mörgum sjónarhornum eg lít á það,afhverju eru hundar og kettir með sonna mikið að hárum? sennilega svo þeim verði ekki kalt, afhverju að klæða þau í föt, sjáði fyrir ykkur Funa fræga bókhlöðukött (þetta á ekki við um myndina sem eg sendi af Funa um daginn, þá myndi eg skilja þetta :)) vá broskall með undirhöku) í kjólfötum eða s&m dressi með svipu! eg hef heyrt að það sé svakaleg bið í glasafrjóvganir og ekki er biðin styttri eftir ættleiðingu,en er það ekki sick ef fólk er að stytta biðina um þessum hætti,þetta er bara smá pæling eða bara bull!

ps. ætli það sé til kattar g-strengur?

föstudagur, maí 07, 2004

Ef að stressið er að fara með ykkur þá er ég með eina chill pillu handa ykkur hérna. Ég er búinn að vera með þetta á repeat one í svona 4 tíma í dag, það svínvirkar, ég held að hjartslátturinn hafi farið undir 30 slög/mín. á tímabili hjá mér. Einbeitingin var reyndar í lágmarki en það er aukaatriði.
.....Vá, þetta stærðfræðigreiningarpróf var nú bara fyrsta flokks sorp! En fínt að þetta er búið :) mér finnst ég nú bara vera komin í sumarfrí ;) ...

Eitt er það sem mig langar samt alveg rooooooosalega mikið að vita..
hversvegna gerði maður ekki heiðarlega tilraun til að læra fræðakaflana sína í aflfræðinni um leið og maður skrifaði þá!! ..ég var að komast að því í dag hvað [K] þýðir og sé fram á konunglega skemmtun næstu daga!!

passiði ykkur á þessum lausnum á netinu .. ég er búin með 2 spurningar og búin að finna 3 villur . . .
Já sem betur fer er þetta búið...

...að minnsta kosti í bili! Núna eigum við inni 2 létt próf :) Vonandi að Gísli og Kolbeinn & félagar séu með það á hreinu!
Jæja! Greiningu fjögur lokið, okkur öllum til mikillar ánægju. En þó með smá fyrirvara um að gleðin verði endurtekin í sumar. Ég veit ekki hvað er með þessa kennara núna, þeir hafa greinilega ekki verið í góðu skapi undanfarið. Það virðist einhver illkvittni vera hlaupin í mannskapinn. Þeir gefa manni ekki einu sinni séns á að sleppa því sem maður vill sleppa: "Þú skalt taka Fourier-ummyndun!!" og "Þú munt ekki sleppa við Matlab!" og auðvitað "Hélstu að þú kæmist upp með að læra ekkert í 10.kafla?!" THIS IS A NIGHTMARE!!!
Gísli sendir okkur e-mail kl 12:01 þar sem hann segist vera búinn að skila verkefninu en því miður sé skrifstofan lokuð eftir hádegi í dag. Skemmtileg tímasetning á e-mailinu, sérstaklega því hann segist hafa skilað því á skrifstofuna í gær.
greining eftir 2 tíma.. hver ætlar að vera tilbúinn með spennitreyjuna mína fyrir utan klukkan 12?. . .

fimmtudagur, maí 06, 2004

Ég held að málið sé dautt krakkar. Begga og Katrín voru á röltinu í bænum í gær og sáu Mr. Burns og Mr. Sideburns (Mr. Burns’ evil sidekick) fyrir utan Hlölla að skála í Cherry Cola. Reiðin náði yfirhöndinni og þær veltu þeim upp úr majónesi og fláðu þá svo með glerbrotum. Eins og þið sjáið er ekki mikið eftir af þeim.

getiði hvað ég var að gera í gær.... ....þeir voru BRJÁLAÐIR!!

miðvikudagur, maí 05, 2004

eg bara verð að pína ykkur aðeins! PÍNING
kannski var þetta vatnafræðipróf ekki svona hræðilegt eftir allt, svona ef maður fer að spá í það!

þriðjudagur, maí 04, 2004

jæja, loksins eru myndirnar frá 30 ára reunion-inu okkar komnar á netið, mikið var segi eg nú bara, eg og andrés förum að taka okkur á
Ég styð Ingu ! Veit ekki hvort við þurfum samt að kæra hann formlega, en það er hægt að tala við stúdentaráð (við kusum þá til einhvers !)og láta prófdómara fara yfir prófið og segja til um hvort þetta sé í samræmi við próftíma, áherslur í áfanganum og eitthvað svoleiðis. Þær gerðu þetta í hjúkrun einhvern tímann þegar þær lentu í klikkuðu prófi og það var allt skalað til. Ég hefði að vísu ekki viljað fást við klikkaða hjúkrunarfræðinema, en þó að við séum í verkfr. þá megum við ekki láta alveg valta yfir okkur... Mig langar ekki í fleiri svona próf og þetta er pura hugsunnarleysi hjá kennaranum, eða mastersnemanum?, að fatta þetta ekki (sem og villurnar í prófinu sjálfu). Heyr heyr!!!!
það er svo gaman af usa-köllunum, þeir eru svo svakalegir, ef það gerist e-ð heimskulegt þá er pottþétt að e-r usa-kall hefur verið á staðnum! þetta er ágætis dæmi
Hvernig er það er ekki hægt að kæra of löng og erfið próf?

mánudagur, maí 03, 2004

.....Hvað væri meira hvetjandi svona daginn fyrir vatnafræðipróf en kveðja frá goðinu sjálfu ?!?!

..this is William Hung, calling to let you know someone is thinking about you :) .. ég hefði sent þetta á línuna ef ég ætti pening, en þið verðið að láta þetta duga ;) gangi ykkur vel að lesa
Vá!! þetta var þokkalega langt próf!!

ég vildi að ég hefði ekki verið svona mikill skussi í lík og töl!!

Gátuð þið flóðarakningardæmið?
Ókei öll þið vatnafræði meiníjök...þá er komið að því að láta reyna á kva þið kunnið! ..vill eikver gjörugsa og vel og útskýra fyrir mér kvernin þessar raðir og dálkar eru reiknuð út í sýnidæmi 4.4...er búin að stara á þetta dæmi í klukkutíma og enn hefur ekki runnið upp fyrir mér ljósið!! ...svo ef þið viljið...plís... :/
Þessi helv... vatnafræði er að ganga af mér dauðri! Reyndar er það aðeins 9.kafli sem er að ganga af mér dauðri með alltof stórum skammti af leiðindum! Nú eru bara 10 dagar í próflok.................;)

sunnudagur, maí 02, 2004

Það virðist vera sem að allir séu bara að læra í dag, a.m.k. er ég búinn að kíkja svona 100 sinnum á síðuna (því mér finnst svo skemmtilegt að læra í vatnafræði og held athyglinni alveg 100%) og ekkert nýtt er komið, allavega ekkert sem skaðar ekki geðheilsuna að lesa ;)
Ég hugsaði með mér: Hvað er það sem allir hafa skoðun á og vilja tjá sig um? og var ekki lengi að komast að niðurstöðu....
Hvort verður það Kelly Jo eða Estella sem Bob velur? Mun hann velja eins og pabbi hans vill og velja unga og ferska stelpu sem smellur við hlið hans eins og flís við rass? Eða mun hann velja þroskaða, heillandi og sjálfstæða konu sem hefur heillað mömmu hans upp úr skónum og starfar auk þess á sama sviði og hann sjálfur?
Hvað haldiði krakkar? Höfum nú smá skoðanakönnun.

Og að lokum: Áfram KA!!!! (ég fyrirgef samt þeim sem horfa ekki á leikinn og horfa á Ópru í staðinn því Beyoncé er gestur hjá henni og hver vill ekki horfa á hana???)
Í gær brást ég.
Ég brást sjálfum mjer
Ég brást foreldrum mínum, sem ólu mig upp í góðum gildum
Ég brást samfjelaginu

Okkur er leyft að valsa um á þessari jörð í trausti þess að við breytum rjett og sjeum góð við náungann. Í gær fór ég út í búð til að kaupa mjer þurrkaðar döðlur, sem ég geri oft því mjer finnast þurrkaðar döðlur sælgæti. Allur háttur er á hvurnig ég neyti þeirra, og fer það iðulega eftir því hvurnig á mjer liggur hverju sinni, ég deili þeim samt ekki með neinum. Ýmist borða ég þær eintómar, húða þær súkkulaði eða sýð úr þeim súpur og grauta, en hvað um það. Þegar ég var kominn út í Hagkaup og búinn að hreinsa verslunina af þurrkuðum döðlum og meira að segja búinn að væna verzlunarstjórann um að fela fyrir mjer þurrkaðar döðlur inni á lager, var ég sakaður um að vera að stela. Hann ljet leita í samfestingnum mínum, en fann ekkert nema döðlusteina sem hann var fljotur að setja aftur á sinn stað. Ég geymi alla döðlusteinana ef ég skyldi eignast gróðurhús einhvern tíman, þá myndi ég fylla það af döðlutrjám og valsa þar um nakinn og tína upp í mig döðlur. Ég er nefnilega soddan náttúrubarn. Já og svo var komið að því að borga og ég tæmdi körfuna á færibandið og stúlkan framkvæmdi píp fyrir hvern poka, alls 20 píp,vá! tuttugu píp, ég hugsaði mjer sko gott til glóðarinnar. Mjer reis hold af tilhlökkun og borgaði uppsett verð, en þegar hún gaf mjer til baka tók ég eftir að í lófa mínum voru hundrað krónur umfram það sem rjett var. Þá gerðist svolítið undarlegt, í stað þess að skila frökeninni pjeningunum svitnaði ég allur og stakk þeim í vasann, hrifsaði til mín döðlurnar og hljóp á dyr. Ég hljóp alla leiðina heim. Ég fór meira að segja svo hörðum höndum um gersemarnar að einn pokinn rifnaði og þurrkaðar döðlur dreifðust um planið fyrir utan Hagkaup. Brátt komu að svartir hrafnar og fóru að eta döðlurnar, það þóttu mjer heppnir hrafnar

laugardagur, maí 01, 2004

Vááá hvað þetta er satt! Maður er kominn með margra ára þjálfun í því að útiloka mannveruna sem stendur við töfluna! Þetta er ótrúlegt! En maður ætlar auðvitað að taka sig á á næstu önn ;)
.....''There are times, when you wish, you wish, and you wish SO BAD you had paid attention in class .. at least once''

-B.R.Halldórsdóttir 1981-