laugardagur, maí 15, 2004

Elsku litlu krúttilegu bekkjarfélagar!
Þá er komið að síðasta prófinu okkar í bili og stressið farið að segja all hressilega til sín. Þess má geta að ég var svo stressuð í gær að ég fékk gubbupest! Vona innilega að enginn hafi verið í sömu sporum og ég. En ég mun því miður ekki heiðra ykkur með nærveru minni í kvöld þar sem ég held til fjarlægari landa í fyrramálið. Og því segi ég bara: Takk fyrir veturinn og góða skemmtun í kvöld :) Þið verðið að taka vel á því og standa undir væntingum um mikið stuð með Hemma Gunn!
Gleðilegt sumar öll sömul!

Engin ummæli: