sunnudagur, maí 02, 2004

Það virðist vera sem að allir séu bara að læra í dag, a.m.k. er ég búinn að kíkja svona 100 sinnum á síðuna (því mér finnst svo skemmtilegt að læra í vatnafræði og held athyglinni alveg 100%) og ekkert nýtt er komið, allavega ekkert sem skaðar ekki geðheilsuna að lesa ;)
Ég hugsaði með mér: Hvað er það sem allir hafa skoðun á og vilja tjá sig um? og var ekki lengi að komast að niðurstöðu....
Hvort verður það Kelly Jo eða Estella sem Bob velur? Mun hann velja eins og pabbi hans vill og velja unga og ferska stelpu sem smellur við hlið hans eins og flís við rass? Eða mun hann velja þroskaða, heillandi og sjálfstæða konu sem hefur heillað mömmu hans upp úr skónum og starfar auk þess á sama sviði og hann sjálfur?
Hvað haldiði krakkar? Höfum nú smá skoðanakönnun.

Og að lokum: Áfram KA!!!! (ég fyrirgef samt þeim sem horfa ekki á leikinn og horfa á Ópru í staðinn því Beyoncé er gestur hjá henni og hver vill ekki horfa á hana???)

Engin ummæli: