miðvikudagur, maí 19, 2004

Jæja, nú er sko vika letinnar tekin við! Maður bara sefur til hádegis og lufsast síðan það sem eftir er af deginum. Svo verður maður náttúrlega að vinna upp allt sjónvarpstapið s.l. vikur. Það eru nefnilega ekki allir sem tóku sér pásu á bókhlöðunni til að fylgjast með Leiðarljósi!
Best að njóta þess meðan það varir. Það ætti nú ekki að vera erfitt þegar Pride and Prejudice er innan seilingar, með Colin Firth í fararbroddi!

Engin ummæli: