miðvikudagur, maí 12, 2004

Ég vildi bara minna ykkur á, krakkarnir mínir, að hugsa vel um húðina og bera á hana bæði nætur og dagkrem svo þið verðið ekki krumpuð og ógeðsleg.

Ég hef reyndar aðeins verið að þefa í kringum stelpurnar í vetur, og flestar virðast nú nota krem af einhverju tagi. Mjer fannst nú reyndar ódýr lyktin af þeim flestum. Það borgar sig að kaupa gott krem.

Hann Gunnar Arnar ilmar alltaf af nýjasta kreminu frá Katrin Herzog og mjer finnst að þið ættuð að taka hann ykkur til fyrirmyndar, svo er hann líka búinn í prófum eins og hann er svo duglegur að segja frá.

Maski öðru hverju setur svo punktinn yfir i-ið, það er líka gaman, að vera grænn í framan.

Fiskbúð Hafliða var að auglýsa glænýja línuýsu í dag, hvar fær Hafliði eiginlega allan þennan fisk?

Engin ummæli: