mánudagur, maí 10, 2004

Verið velkomin í spurningaleikinn Gettu Bekkur! Dómari og spurningahöfundur er Halim Al og sjálfur heiti ég ekki Logi Bergmann Eiðsson en við treystum því að Steina Vala sjái um að telja stigin.
Spurning dagsins er bjölluspurning, ég vil minna þátttakendur á að aðeins er einn svarréttur á mann við hverja spurningu.
Við skulum sjá mynd.
Árið 1990 var þessi maður á hápunkti ferilsins og gaf þá út plötuna To The Extreme sem innihélt m.a. lagið Ice Ice Baby. Aðrar plötur sem hann hefur gefið út eru til dæmis Hot Sex (2003) og Hard To Swallow (1998).
Hvað heitir kappinn?
Tikk takk tikk takk tikk takk tikk takk….

Engin ummæli: