laugardagur, maí 15, 2004

Oks... það eru bara fjórir og hálfur tími þangað til við göngum út úr stofunni og jaba daba... við erum búin með vorönn Háskóla Íslands veturinnn 2004... jaba daba.

Og þar sem ég er svo upptekin af rennsli timans þessa dagna, þá finnst mér ótrúlega sniðugt að einhver kemur til með að lesa þetta þegar við erum búin, tjillar, sest við tölvuna og sér þá þetta, og finnst þetta nú lítið mál... að vera búinn. Puff...

En það er samt eitt helvítis próf eftir þessa stundina og ég þori ekki einu sinni að hrista hausinn eða beygja mig niður, ég er svo hrædd um að sýndarvinnusetningin eða RR-aðferðin detti út úr hausnum á mér. Það stendur frekar tæpt! Ég ætla sko að halda henni nauðugri þarna inni og drekkja henni svo í kvöld, that will give me alot of satisfaction!!! Múehehheheheheheh... Special for you my friend, only for you my friend...you boring bitch!

Engin ummæli: