föstudagur, júlí 16, 2004

Það er alveg að fara með mig að það sje ekki hægt að gera broskalla hjerna á síðunni.
 
Þess vegna tók ég mig til og mun bjóða upp á ókeypis broskalla
 
Í guðanna bænum grípið þetta frábæra tækifæri og yljið bekkjarfjelögum ykkar um hjartaræturnar með ókeypis brosköllunum hans Andrjesar, það er nefnilega aldrei fýla þar á bæ

 
það eina sem þið þurfið að gera er að fara í edit HTML og  setja eftirfarandi texta inn á milli <>. Þessa sniðugu stafi má finna beint fyrir neðan a og við hliðina á z. Þetta geriði beint á eftir þeim texta sem að þið viljið að broskallinn eigi að koma.
 
Textinn er:  img src="http://hi.is/~andresa/myndir/bros.jpg"
 
ég myndi setja þetta inn á milli <> til að sýna ykkur nákvæmlega hvernig þetta á að vera en, þá kæmi bara broskall  

Engin ummæli: