fimmtudagur, júlí 29, 2004

Allir þeir sem enn hefir ekki lærst að halda sig heima þessa helgi eru áminntir um það að enginn sje verri þó hann vökni.

Sjalfur mun ég leggjast undir feld og iðka andlegar íþróttir í gullnu jafnvægi við kvikindislegan hlátur.

Hláturinn verður tileinkaður hundvotum vesalingum í Herjólfsdal og nágrenni.

Kæru samstúdentar, munið eftir að pakka froskbúningnum eða gúmklæðnaði og eins gæti verið vissara að prenta út nokkra af ókeypis brosköllunum hans Andrjesar, því þeir ylja öllum um hjartaræturnar.

- - - - - - - - - - - - - -klippið- - - - - - - - - - - - -



- - - - - - - - - - - - -klippið- - - - - - - - - - - - -






miðvikudagur, júlí 28, 2004

Ef þið vitið um einhvern sem vantar flugmiða frá Bakka til eyja á föstudaginn kl. 14:15 og svo heim á mánudag, endilega látið mig vita..
ALLIR LIFANDI?!?!
 
Hvað segist fólk? Eru ekki allir örugglega með meðvitund eftir party-ið hans Víkings?!? Hvernig væri nú að tjá sig eitthvað um upcoming weekend eins og kanarnir myndu orða það....
Eru ekki allir komnir í geggjað stuð og stemmingin orðin ólýsanleg!?!

laugardagur, júlí 24, 2004

Er einhver stemming fyrir bekkjarparty í kvöld?
Ef svo er þá eruð þið öll velkomin heim til mín, ég sendi ykkur ímeil á HÍ-póstinn á eftir með heimilisfanginu og svoleiðis, ef einhver fær ekki póst hringið þá bara í mig eða e-ð. Endilega látið þetta berast til þeirra í bekknum sem eru ekki alveg alltaf að kíkja á þessa síðu. Það væri líka fínt að vita hvort einhverjir komast, af því að fyrirvarinn er svona í styttri kantinum.

fimmtudagur, júlí 22, 2004

Loksins loksins...
Í dag rann upp sá dagur sem ég hef beðið eftir síðan 17. maí.
Þegar ég var að hjóla í vinnuna í morgun var í fyrsta skipti í sumar ekki mótvindur á leiðinni. Nú get ég hætt að hreita ókvæðisorðum í hjólandi fólk sem ég mæti alltaf á leiðinni og er alltaf með meðvind.

miðvikudagur, júlí 21, 2004

Á þessu ferðalagi fylgjumst við að.
Við eigum, örlítinn vonarneista fyrir hvort annað.
Í ljósu mánaskini vel ég mér stund og segi:
ég myndi klífa hæstu hæðir fyrir þig. 
ég væri ekkert án þín, myrkrið hverfur því að... 

Lífið er yndislegt, sjáðu það er rétt að byrja hér

Lífið er yndislegt með þér.
 

Hvað segir fólkið? Rúm vika í verslunarmannahelgi. Hvert er fólkið að fara? Verða reiknivélar með í för? Eyjar? Akureyri? Grímsey?   

þriðjudagur, júlí 20, 2004

mánudagur, júlí 19, 2004

Tilkynning tilkynning, hef fengið mig fullsaddan af íslenzkum mönum. Er fluttur til Ammríku og er orðinn mótorhjólalögga.



labbi labbi labb... labbi labbi labb....
Einhverja hluta vegna man ég ekki eftir þessum gleraugum...
Enn ég man aftur á móti eftir fjöldanum öllum af furðufuglum niður í bæ!
Hvað var í gangi? Hverjir voru skrítnir? Á hverju var liðið?
Fylgist með í næsta þætti af verkfræðicoolistum.just...

laugardagur, júlí 17, 2004

jæja mar er sonna alveg að rétta úr kútnum eftir djammið í gær, massaparty hjá Tótu, enda ekki annað hægt þegar þetta lið kemur saman, teknar voru nokkrar myndir af sukkinu sem hægt er að nálgast hér, takiði svo eftir síðustu myndinni, samt þetta eru ekki hin einu sönnu en samt kókómjólkurdjammgleraugu, þau eiga bara eftir að veðrast á djamminu þá verða þau kannski eins og hin einu sönnu kókómjólkurdjammgleraugu, hver veit!!     

föstudagur, júlí 16, 2004

Það er alveg að fara með mig að það sje ekki hægt að gera broskalla hjerna á síðunni.
 
Þess vegna tók ég mig til og mun bjóða upp á ókeypis broskalla
 
Í guðanna bænum grípið þetta frábæra tækifæri og yljið bekkjarfjelögum ykkar um hjartaræturnar með ókeypis brosköllunum hans Andrjesar, það er nefnilega aldrei fýla þar á bæ

 
það eina sem þið þurfið að gera er að fara í edit HTML og  setja eftirfarandi texta inn á milli <>. Þessa sniðugu stafi má finna beint fyrir neðan a og við hliðina á z. Þetta geriði beint á eftir þeim texta sem að þið viljið að broskallinn eigi að koma.
 
Textinn er:  img src="http://hi.is/~andresa/myndir/bros.jpg"
 
ég myndi setja þetta inn á milli <> til að sýna ykkur nákvæmlega hvernig þetta á að vera en, þá kæmi bara broskall  

Ég veit ekki með ykkur en ég er allavega farin að hlakka til kvöldsins! Vonandi mætið þið sem flest... hverjir ætla ekki að mæta?!? Ég bara spyr. Þetta er einstakt tækifæri til að taka Hemma og Sísí fríkar út. Ekki missa af því!

miðvikudagur, júlí 14, 2004

Ég fór í regngalla í morgun, en svo kom bara sól!

Dæmigert fyrir mig!!

Ég í morgun!

þriðjudagur, júlí 13, 2004

Bekkjarpartí heima hjá mér á föstudaginn! Búin að senda út póst með heimilisfanginu en eins og áður - ef þú hefur ekki fengið póst láttu mig þá vita!
Þeir sem eru að fara að vinna á laugardaginn mæta þangað þunnir!

föstudagur, júlí 09, 2004

stundum er betra að hafa hugann við það sem mar er að gera, þessi töffari klikkar alveg því!

fimmtudagur, júlí 08, 2004

This must be my lucky day!

þriðjudagur, júlí 06, 2004

Í tilefni þess að ég var að kaupa mér íbúð þá ætla ég að hafa innflutningspartý á laugardagskvöldið og tékka hvort hún þoli ekki ýmsar gerðir álags. Þið eruð að sjálfsögðu velkomin :)
Ég sendi ykkur e-mail með heimilisfanginu og ef þið fáið ekki e-mail verðiði bara að hafa samband við mig.
Myndirnar frá Skógum eru komnar á Naglasíðuna. Við tókum einhverjar 400 myndir, en hentum einhverjum tvöhundruð út af okkur Gunna, okkur virðist greinilega finnast það skemmtilegt að taka myndir hvor af öðrum....

mánudagur, júlí 05, 2004

Já þessi útilega var engin smá snilld! Það er nokkuð ljóst að ef stjórnin okkar heldur áfram að brillera svona eins og hún gerði um helgina þá verður sko gaman að vera Nagli í vetur!!!