laugardagur, desember 17, 2005

Maður sér klárlega Gunna-move-ið þarna! En er það þetta sem þið gaufist við í vegagerðinni???

Var að spá í próflokadjamm! Er fílíngur fyrir hittingi áður? Ef svo er þá getum við holað okkur niður heima. Það er þarna rétt við VR svo brottfluttir nemendur ættu fljótt að komast í gírinn. Eru ekki annars flestir komnir heim þarna í kringum 21.?

Annars eru mestu snillingarnir í hópnum að fara í JAVA-próf! núna eftir tæpa klukkustund. Þeir sem náðu java-búðinga-prófinu skríða nú vonandi yfir fimmuna með ekkert of mikilli fyrirhöfn. Hoffinn er nú einu sinni verndari búðanna og kemur til með að sjá um málið! Ekki satt?

föstudagur, desember 09, 2005

Halarófa fyrir lengra komna

Jæja Gunni, nú þarf að fara að æfa halarófuna fyrir próflokablekið, spurning hvort þú lærir ekki bara þessa utan að og takir að þér lestarstjórastöðuna eins og vanalega.
Hvað segir Gamli um það?

miðvikudagur, nóvember 16, 2005

Sæl, og takk fyrir síðast, í dag er miðvikudagur og þið vitið öll hvað það þýðir.. jú, það er komið að miðvikudagsgetrauninni!

Ég var með í höndunum grein er kom frá landmælingum íslands. Greinin var á acrobat formi og ákvað ég að beita smá ctrl+f á skjalið áður en lestur hófst. Niðurstöðurnar voru þessar:

coordinates: total instances found: 80
prject: total instances found: 60
datum: total instances found: 53
latitude: total instances found: 36
longidute: total instances found: 24

Þá er það spurningin, hver er höfundur greinarinnar, hverrar þjóðar er hann, notar hann axlarbönd og hversu mörg orð eru eftir í skjalinu er þessi orð hafa verið tekin út?

ísbíltúr með Birgi Jóns í verðlaun

þriðjudagur, nóvember 08, 2005

Halló halló! Ekkert að gerast á þessari síðu!

Hvað segiði annars lömbin mín? Er ekki stemmning hjá almúganum að hafa partý næstu helgi?

Ég er amk tilbúin til þess að bjóða ykkur á menningarheimili mitt næsta laugardagskvöld. Makar að sjálfsögðu velkomnir. Endilega kommentið hvort þið ætlið ekki að mæta :)

fimmtudagur, október 13, 2005

Gonsales Bajers Jeres

Eins og kemur fram í færslunni hennar Beggu hérna fyrir neðan þá verður kennarafagnaðurinn haldinn hátíðlegur þann 21. október, þá hefur þótt tíska að nemendur sem hafa farið í útskriftarferð um síðastliðið vor haldi smá myndasýningu frá ferðinni. Við Drési vorum fengnir í það verk að steypa saman þessari myndasýningu. Eins og talað var um þá áttu allir að koma 50 "bestu" myndunum til Þorbjargar,ekki hefur það tekist hjá öllum. Til þess að þessi myndasýning verði hin ágætasta skemmtan þá væri mjög gott ef þeir sem eru ekki búnir að klára sín mál ljúki þeim sem fyrst. Sigta myndirnar með 50 mm sigti(til þess að fá 50 "bestu" myndirnar),setja þær í zip-skrá, henda þeim svo á heimasvæðið sitt og senda okkur síðan urlið á þær. Segjum að fresturinn renni út laugardaginn 15.október kl 15:03. Að lokum vil ég kvetja alla þá sem geta mætt að mæta, því ég held að þetta gæti orðið fyrirmyndar bleg!!!

miðvikudagur, október 12, 2005

VÍSÍ SKVÍSÍ !!!
Ég ætlaði bara að minna ykkur á vísindaferðina í Almennu 28.október. Ég veit að kennarafagnaðurinn er helgina á undan svo nú vitið þið þetta með góðum fyrirvara og haus-leysi á kennarafagnaði er engin afsökun fyrir vöntun í almennu!! Við Þorbjörg og Soffía hlökkum voða mikið til að sjá ykkur og erum strax byrjaðar að baka ..ehh.. brugga :)

ps. ég var úti að keyra áðan og sá Birgi Jóns borða ís í bílnum við hliðina. Það held ég að sé til þess að gera sirka eitthvað af stærðargráðunni 3ja skipti sem ég sé Birgi með ís undir stýri .. merkilegt..

sunnudagur, október 02, 2005

Ótrúlegt en satt fór mamma mín til Kenya núna í ágúst og aftur ótrúlegt en satt var hún á Indian Ocean Beach Club Hotel. Hver haldiði að þriðja tilviljunin hafi nú verið!?!
Kreditkortið hennar var falsað! Alls konar færslur frá hóteli á Ítalíu og bókakaup upp á 40.000 kr einhvers staðar í útlöndum. Þetta er aldeilis eðalhótel sem við vorum á.

miðvikudagur, september 28, 2005

Atburður vikunnar, Katrín að læðast ofseint inn í þéttsetinn tölvunarfræðidæmatíma... alltaf jafnnett á því þessi elska, læðist inn, sér engan sem hún þekkir svo hún ætlar að smjúga nett í sæti í fremstu röð, stekkur upp á borðið og hoppar ofan í sætið með skólatöskuna á bakinu... tók einhver eftir henni???

miðvikudagur, september 21, 2005

jæja stelpur eru þið ekki alltaf í gymminu að taka á því og hlaða í byssurnar eins og það kallast á hnakkamálinu, eins og við vitum öll á hefur allt sín takmörk, ég hef smá áhyggjur af ykkur þar sem þið eruð mjög metnaðarfullar, því oft er sófinn betri enn æfingin;)

miðvikudagur, september 14, 2005

Þorsteinn lét mig vita að hann setti Aswan verkefnin okkar inn á heimasíðu skorarinnar. Hélt kannski að Afríkufararnir vildu líta á þetta :)

miðvikudagur, september 07, 2005

Ég byrjaði víst á því að monta mig á hitanum hérna í Kaupmannahöfn en ég verð víst að taka það mont til baka. Ekki þó vegna þess að það sé orðið kalt heldur vegna þess að ég er að deyja úr hita! Eins og flestir vita - vegna háværu minnar - þá er hitakerfið í líkama mínum mjög ofvirkt. Sem betur fer fæddist ég ekki á Spáni en ég hefði alveg þegið Norðurpólinn til að gera þetta almennilega. Skólinn er fínn en ÉG ER AÐ DEYJA ÚR HITA!

Vona að þið hafið það gott í tveggja stiga hitanum heima;)

þriðjudagur, ágúst 30, 2005

Myndir frá Kárahnjúkuma
Horft inn gljúfrin í átt að Kárahnjúk.


Ég fattaði það seinna að þarna stóð ég þegar ég tók fyrri myndina.



Bíllinn minn eins og hann fannst efir að ég hvarf sporlaust.


Færiböndin sem liggja frá grjótflokkunarvélunum.
Stíflan séð að neðan


Stíflan séð ofan af Kárahnjúk

fimmtudagur, ágúst 25, 2005

Af ósk ónefnds Kenneths í bekknum hefur aðalpartíið verið fært fram á föstudag, þar sem hann komst á snoðir um það að fleiri af krúinu gætu hugsanlega mætt þá. Það breytir því þó ekki að það verður líka partí á laugardag. Fyrir þá sem ekki vita bý ég í íbúð 216 í stóru blokkinni á görðunum, sama húsi og 10-11.
Sjánst!!!

mánudagur, ágúst 22, 2005

Prófloka / útflutnings / örugglegaeitthvaðfleira-partý um helgina heima hjá mér. Uppástungur að tímasetningum vel þegnar. Nánari upplýsingar koma þegar ég er búinn að wraskella straumfræðina.... stay tuned!

föstudagur, ágúst 19, 2005

Pravda ekki Hressó

Hittingurinn hefur sum sé verið færður yfir á Pravda og vegna þess hve frábær við erum fáum við tilboð á bjór til miðnættis!

Sjáumst í kvöld!!!

fimmtudagur, ágúst 18, 2005

Ágætu coolistar!

Hittingur á Hressingarskálanum föstudagskvöldið 19. ágúst. Þar fær fólk tækifæri til þess að hitta okkur burtfararfólk í hinsta sinn og faðma, kyssa og knúsa okkur að vild. Mælt er með því að fólk mæti með fyrra falli og skemmti sér gríðarlega.

Hlakka til að sjá ykkur öll!!!

þriðjudagur, ágúst 16, 2005

Tears in my eyes.

Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá eru það umbúðir sem eru hannaðar þannig að það á að vera auðvelt að opna þær, en það virkar svo ekki. Í gær keypti ég mér poka af Galaxy minstrels nammi og á honum stóð: Easy opening - Tear here. Ég grenjaði og vældi yfir helvítis pokann í svona hálftíma en ekkert gerðist og eins og alltaf endaði þetta á því að ég náði mér í skæri.

sunnudagur, ágúst 14, 2005

Dæmi úr greiningu 4:
Find the temperature in an infinite bar.
...ég mundi þokkalega ekki vilja vera barþjónn þarna, sama hversu heitt er!

laugardagur, ágúst 13, 2005

Enginn annar en sjálfur Fidel Castro á afmæli í dag. Hann er hvorki meira né minna en 79 ára kappinn sem þýðir að hann er næst elstur í bekknum á eftir Kenneth. Fidel eða Fiddi eins og við köllum hann oftast er alger snillingur og að ég held eini maðurinn sem hefur frestað jólunum. Til hamingju með daginn Fidel!

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

eru ekki allir í stuði??
jæja, allir að fara í sumarpróf er það ekki? eða hvað! en þeir sem eru ekki að fara í sumarpróf og eru að fara í útlanda, á ekkert að kveðja? bara rjúka í burtu án þess að segja bless! það væri nú stemmari að halda e-ð teiti eða bara hitting? hvað segir gengið um það?